Kórall

Ást mín er endurgoldin.
Ég elska aðra og aðrir elska mig.
Ég tilheyri.
Forsíða
Reisan - the Journey á vefnum

 Reisan  (The Journey) er kominn á sérvef og er allar upplýsingar að finna á http://lenamar.net/index.php/Reisan-the-Journey.html

reisan.jpg


 
Pistill 6.01.2008

Í síðast pistli talaði ég um illskuna, hve mikilvægt það er að horfa á það jákvæða í stað þess að gefa athyglina á það neikvæða. Því það sem athyglin beinist að eykst og dafnar.

Það getur verið erfitt að horfa með jákvæðni á lífið þegar öll umgjörð hrinur í kringum mann, þegar samferðamaður ákveður að fara aðra leið en þú. Þá fer að hrista í stoðum tilverunar svo um munar. Hvenær og hvernig er hægt að ná jafnvægi á ný? Er hægt að ná jafnvægi á ný? Það er allavega ekki hægt nema að vinna í því, það gerist ekkert að sjálfu sér. Það skiptir máli að vera meðvitaður, skoða sjálfan sig og eigin viðbrögð því málið snýst alltaf um þig ekki hina. Það er hvernig þú bregst við aðstæðum í lífi þínu ekki hvað aðrir eru að gera! Hægt er að fara ýmsar leiðir í dag til sjálfseflingar og sjálfsþroska. Sú leið sem ég hef valið er ein af fjölmörgum sem hafa í raun sama markmið. Að lifa í fullu samræmi við það sem maður er, nýta hæfileika sína og þroskast og eflast sem meðvituð manneskja og ekki síst að lifa í gleði.

Mín leið þessa stundina er að ganga í gegnum og læra aðferð Brandon Bays, aðferð sem hún kallar The Journey™ eða eins og hægt er að segja á íslensku Reisan. Í apríl á síðasta ári fór ég á helgarnámskeið hjá henni þar sem hún sagði frá lífi sínu og hvernig hún þróaði reisuna í gegnum sín veikindi. Einnig kenndi hún aðferðina sem hefur nýst henni svo vel. Aðferðin er auðveld og allir geta framkvæmt hana. Allt sem þarf er að vilja breyta og bæta eigið líf. Vilji til að horfast í augu við eigin minningar, minningar sem ekki eru uppi á yfirborðinu, minningar sem geta verið sárar jafnvel óbærilegar, minningar sem maður skammast sín fyrir og ekki síst viljinn til þess að fyrirgefa, ekki bara öðrum heldur einnig sjálfum sér. Ávinningurinn er stórkostlegur. Brandon hefur skrifað nokkrar bækur en í bók sinni The Journey™ telur hún ávinninginn vera meðal annars:

  • Fjarlægir margra ára líkamlegar og tilfinningalegar hindranir
  • Tengir þig við þína innri vitund
  • Raungerir alla þína hæfileika og nýtir þá í lífinu
  • Upplifir óendanlega gleði innra með þér
  • Verður raunverulega frjáls

Það sem heillaði mig samt mest við hennar aðferð er að verkfærið er einfalt og hægt er að nýta það fyrir börn frá 5 ára aldri. Þeir sem vilja fræðast um hennar störf vil ég benda á heimasíðuna: www.thejourney.com

Þeir sem hafa áhuga á að prufa reisuna geta haft samband við mig og Lenu í gegnum heimasíðuna.

Kærleikskveðja

Helga

 
Spennandi námskeið í ferli sjálfsstyrkingar og auknum þroska


 Litir ljóssins / Litaspjald barnsins

 

lenamar_rickie_namskeid Rickie er lærður Aura-Soma® kennari og er með diplóma í ráðgjöf og samskiptum. Hún hefur skrifað bók sem heitir The Child's Palette. Hún hefur haldið námskeið víða í Evrópu, Asíu, USA auk síns heimalands. Síðastliðið sumar hélt hún samskonar námskeið hér á Akureyri. Á námskeiðinu voru einstaklingar með ýmsan bakgrunn m.a. foreldrar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, kennarar, yogakennarar, svæðanuddarar og fleiri. 

Nánar...
 
12.11. 2006
Helga Erlingsdóttir skrifar:

Eckhart Tolle segir í bók sinni Kyrrðin Talar ,,veitið ekki illskunni viðnám”. Ég var að hugsa um að leggja út af þessum orðum í dag en við nánari umhugsun komst ég að því að betra væri að vera á jákvæðari nótum. Því skilja má þessi orð Eckharts á þann veg að því meiri athygli, því meiri umfjöllun um illskuna, því eflist hún og styrkist eins og púkinn á fjósbitanum hjá Sæmundi forðum.

Í okkar veraldlega umhverfi er erfitt að horfa framhjá og láta sem illskan sé ekki til. Fréttaflutningur byggir oftar en ekki á einhverskonar illsku því eins og máltækið segir: ,,engar fréttir eru góðar fréttir”. Missum við af fréttunum þá er umhverfið fljótt að fylla uppí og það sem er umræðuefni manna á milli er það sem miður fer og verk unnin af illsku.

Í uppeldisfræðum er lögð áhersla á að beina athygli barna að hlutum sem þau mega gera, mega snerta, mega vera með í stað þess að banna stöðugt. Það er ekki skrýtið þó eitt af fyrstu orðum barnsins sé nei. Athyglin þarf að vera á þeim hlutum sem eru æskilegir og sem börnin mega.

Er ekki lag á að horfa á þetta jákvæða, ekki bara horfa á það heldur hamra á því tala um það og lifa það. Þegar öll sund virðast lokuð er erfitt að vera jákvæður en eins og sagt er: það er dimmast fyrir sólarupprás. Jákvætt hugarfar er það sem skiptir öllu máli. Það gerir kraftaverk en taktu eftir í hvaða formi kraftaverkið er. Allir ganga í gegnum lífsins öldudal og á leiðinni eru erfið spor, við komumst ekki hjá þeim. En ef við temjum okkur jákvætt hugarfar hjálpar það okkur og auðveldar leiðina.

Ég horfi út um gluggann í garðinum er stórt tré. Það snjóar stórum flyksum í logni og snjórinn hleðst upp á greinarnar. Ég sé ekki það sem er hinu megin við tréð, en með smá andvara sópast snjórinn af greinunum og það sést hvað er hinu megin.

Við eigum oft erfitt með að sætta okkur við aðstæðurnar en kannski þarf bara ferskan andvara til þess að skýið sem hylur sýn okkar hverfi. Andvarinn getur verið í mörgum myndum svo sem bros, gott veður, símtal, leikur eða eitthvað annað sem yljar um hjartaræturnar.

Brostu framan í heiminn og hann brosir við þér.

Kærleikskveðja


 
5.09.2006

Helga Erlingsdóttir skrifar:                     

Heimasíðan okkar. Hvernig ætlum við að hafa hana? Það er eins og að horfa á barn sitt stækka og þroskast. Frá því að hugmynd verður til og raungerist er ýmislegt sem gerist. Og viti menn allt í einu er komin heimasíða. En hvert á að vera innihald hennar fyrir utan rúnir, aura-soma og myndir? Pistill!! Já það líst mér vel á, efnið getur verið af ýmsum toga allt sem varðar lífið og tilveruna frá hinum ýmsustu sjónarhornum. Mér líst vel á að láta ljós mitt skína, segja frá mínum skoðunum og taka þátt í þeirri umræðu sem er efst á baugi í þjóðfélaginu hverju sinni. Ég hef til dæmis mínar hugmyndir og skoðanir á samkynhneigð. Sérstaklega í ljósi þess að nýlega las ég bók eftir Shirley Maclain þar sem kemur fram en eitt sjónarhornið á þessu annars umdeilda máli. En nú ætla ég ekki að ræða þá bók það verður efni í annan pistil,  því efni hennar er mér svo hugleikið. Andleg og veraldleg málefni, andlegt í veraldlegu umhverfi er það ekki það sem við erum?  Já eins og þið sjáið er úr mörgu að moða. Hugmyndin er, að hafir þú áhugaverðan pistil þá endilega sendu hann inn, hver veit nema að þú dettir í lukkupottin (fáir náð fyrir ritnefndinni) og pistillinn verður birtur. Það er með spennu og dulítlum kvíða sem við fylgjumst með þessu barni okkar. En því er ekki að neita að það er líka gleði og ánægja sem fylgir þessu vafstri. 

kaunas Það skiptir máli að halda í barnið í sjálfum og leikinn, því drógum við rún á þessum merku tímamótum. Rúnin sem var dreginn heitir Kaun sem meðal annars stendur fyrir sköpun og þekkingu. Rúnin tengist hvatastöðinni og þar með sköpunarkraftinum. Styrkur, kraftur og jákvæðni fylgir þessari rún. Þetta er rún morgundagsins þegar þú vaknar endurnærður og tilbúin til að takast á við daginn. Mjög mikil framkvæmdarorka fylgir þessari rún. Mikilvægt er að þekkja takmörk sín og ganga ekki of mikið á eigin orkuforða. Rúnin veitir vernd og bendir til batnandi ástands. Þetta er rún opnunar birtu og krafts sem veitir þér tækifæri á að ljúka við ákveðin verkefni eða byrja á nýju.

Þetta er ekki amarlegt veganesti inn í nýja byrjun. Talan þrír fylgir þessari rún og í aura-soma stendur flaska númer þrjú fyrir nærandi samskiptum út frá kærleikanum.

            Það er von mín að þessi heimasíða eigi eftir að vera bæði til gagns og gamans.

Þekktu sjálfan þig eins og stóð yfir hliðinu hjá véfréttinni í Delfí. Þessi einkunnarorð verða leiðarljós þessarar heimasíðu.

            Kærleikskveðjur

 
© 2012 Lena Otterstedt - rúnir - aura soma - myndir -
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.