|
Helga Erlingsdóttir skrifar:
Eckhart Tolle segir í bók sinni Kyrrðin Talar ,,veitið ekki illskunni
viðnám”. Ég var að hugsa um að leggja út af þessum orðum í dag en við nánari
umhugsun komst ég að því að betra væri að vera á jákvæðari nótum. Því skilja má
þessi orð Eckharts á þann veg að því meiri athygli, því meiri umfjöllun um
illskuna, því eflist hún og styrkist eins og púkinn á fjósbitanum hjá Sæmundi
forðum.
Í okkar veraldlega umhverfi er erfitt að horfa
framhjá og láta sem illskan sé ekki til. Fréttaflutningur byggir oftar en ekki
á einhverskonar illsku því eins og máltækið segir: ,,engar fréttir eru góðar
fréttir”. Missum við af fréttunum þá er umhverfið fljótt að fylla uppí og það
sem er umræðuefni manna á milli er það sem miður fer og verk unnin af illsku.
Í uppeldisfræðum er lögð áhersla á að beina
athygli barna að hlutum sem þau mega gera, mega snerta, mega vera með í stað
þess að banna stöðugt. Það er ekki skrýtið þó eitt af fyrstu orðum barnsins sé nei. Athyglin þarf að vera á þeim
hlutum sem eru æskilegir og sem börnin mega.
Er ekki lag á að horfa á þetta jákvæða, ekki
bara horfa á það heldur hamra á því tala um það og lifa það. Þegar öll sund
virðast lokuð er erfitt að vera jákvæður en eins og sagt er: það er dimmast
fyrir sólarupprás. Jákvætt hugarfar er það sem skiptir öllu máli. Það gerir
kraftaverk en taktu eftir í hvaða formi kraftaverkið er. Allir ganga í gegnum
lífsins öldudal og á leiðinni eru erfið spor, við komumst ekki hjá þeim. En ef
við temjum okkur jákvætt hugarfar hjálpar það okkur og auðveldar leiðina.
Ég horfi út um gluggann í garðinum er stórt
tré. Það snjóar stórum flyksum í logni og snjórinn hleðst upp á greinarnar. Ég sé
ekki það sem er hinu megin við tréð, en með smá andvara sópast snjórinn af
greinunum og það sést hvað er hinu megin.
Við eigum oft erfitt með að sætta okkur við
aðstæðurnar en kannski þarf bara ferskan andvara til þess að skýið sem hylur
sýn okkar hverfi. Andvarinn getur verið í mörgum myndum svo sem bros, gott
veður, símtal, leikur eða eitthvað annað sem yljar um hjartaræturnar.
Brostu framan í heiminn og hann brosir við
þér.
Kærleikskveðja
|